28.09.2004 19:52:18 / Bjorn
Jæja, þá er sá dagur runninn upp, dagurinn sem ég yfirgef
Blog.Central. Ég tel mig hafa gert allt sem hægt er að gera með
þessa síðu og því leita ég annað. Nánar tiltekið á blogspot.com.
Frá þessum degi munu mínar burðugu bloggfærslur hljómar þar. Allir
að muna að breyta linkunum á mig
http://mrhilton.blogspot.com/
Ástæðan fyrir að ég hef ekki beinan link er að ég nenni ekki að
vera stússast í HTML fræðum.
»
24.09.2004 15:57:32 / Bjorn
Nú er helgin frammundan. Nóg af gera í lærdómskverunum, þýskupróf
fyrir Mánudaginn, heimapróf í félagsfræði fyrir Mánudaginn og
fleira og fleira (Ef það er eitthvað fleira látið mig vita). Þó mun
ég að öllum líkindum gleyma lærdómnum þar til circa 23.47 PM á
Sunnudagskvöldið, þá mun ég fá nett sjokk og að endingu fara í
bólið með góða áætlun um að svindla á þýskuprófinu og fá að sjá
heimaprófið hjá einhverjum öðrum nemanda. Góðir tímar.
Helgin mín byrjar þó ekki fyrr en við félagar í "De Club van Mensen
Interesseerde zich in Ongewone Films" horfum á tvær sniðugar og
júsí kvikmyndir á Horror Barnum mikla auk þess að setja Falcon
Crest í tækið. Góðir tímar.
"Under capitalism, man exploits man. Under communism, it's just the
opposite." (John Kenneth Galbraith)
»
23.09.2004 17:07:46 / Bjorn
Eftir áralangar rannsóknir hef ég komist að því að Fimmtudagar eru
mjög leiðinlegir dagar til að vera í skólanum. Þeir byrja
leiðinlega og enda seint.
Annað sem ég vil koma fram; Þeir sem segja að allir í Bandaríkjunum
séu heimskir eru heimskir með því að koma með svona heimskulega
staðhæfingu. Takk, ég vildi bara segja ykkur þetta því að það eru 2
hópar í Íslensku samfélagi sem ég þoli ekki, einn þeirra er sá
hópur sem getur ekki talað um kvikmyndir, glæpi, samfélagsmál eða
bara yfirhöfuð eitthvað af viti án þess að tjá sig um andúð sína á
Bandaríkjunum. Ég veit að Bandaríkin eru ekki heilög en er eitthver
af okkur það, er heimurinn ekki ein stór kúla yfirfull að syndurum
og dusilmönnum. Ástæða þess að ég rita þetta hér er að því ég var
rétt í þessu að lenda í einum svona einstakling.
PS: Það er ekki of seint að skrá sig í Falcon Crest maraþonið sem
ég og Skúli ætlum að halda. Áhugasamir hafi samband við annað hvort
mig eða Skúla.
"When the character of a man is not clear to you, look at his
friends." (Japanskur málsháttur)
»
21.09.2004 18:00:03 / Bjorn
Í gærkvöldi vorum við meðlimir "félags áhugamanna um skrítnar
kvikmyndir"(Ég, Skúli, Arngrímur, Brynjar og Þorkell) þess
aðnjótandi að fá að sjá myndirnar "Frankenhooker" og "The
Incredible Melting Man". Horfðum við á þessar kvikmyndir á hinum
margrómaða "Horror Bar". Kvikmyndin Frankenhooker dregur, eins og
nafnið gefur nokkurn veginn til kynna, smá söguþráð úr hinni frægu
Frankenstein sögu(já, Frankenstein er ekki byggt á Frankenhooker)
eftir Mary Shelley. Til að eyðileggja ekki fyrir þeim einstaklingum
sem ætla sér að taka þessa mynd á leigu seinna meir hætti ég nú að
tala meira um hana annars gæti ég komið of mikið upp um innihald
þessarar júsí myndar.
Í hinni kvikmyndinni "The Incredible Melting Man" þá fylgjumst við
með því er the Incredible Melting Man labbar um sveitir og angrar
íbúa lítils þorps með því að borða suma þeirra. Mjög áhugaverður
söguþráður.
"You cannot escape the responsibility of tomorrow by evading it
today." (Abraham Lincoln)
»
20.09.2004 14:45:55 / Bjorn
Núverandi staða: Hef ekki enn jafnað mig á ófétis "root beer" sem
ég fjárfesti í. Eftir að hafa séð allar stjörnurnar í Hollywood
þamba þennan drykk hélt ég að ég væri að kaupa fyrirtaksvöru, usss,
allsekki.
Það er nú alveg makalaust hvað hún Imma er alltaf pirruð yfir okkur
í tímum, ég bara skil ekki af hverju. Það er nú ekki eins og hún sé
að kenna eitt af leiðinlegustu fögum sem einfaldir félagsfræðinemar
hafa kynnst og að okkar kynslóð sé með mestu athyglisbresti sem
sögur fara af. Ég stend á gati yfir þessu öllu.
Allavegna í veikindakasti mínu um helgina komst ég að því hversu
mikið ég sakna gömlu Hercule Poirot myndanna sem Stöð 2 sýndi hérna
á árum áður. Sá reyndar Death on Nile um daginn með Peter Ustinov í
hlutverki Poirot, afbragsleikari þó ekki eins góður finnst mér og
David Suchet sem leikur hann núna. Það sem mér fannst alltaf
skemmtilegast við myndirnar var að maður gat reynt komast að því
hver morðingi væri áður en Poirot upplýsti síðan okkur áhorfendur.
Skemmtileg saga.
"Those who dream by day are cognizant of many things which escape
those who dream only by night." (Edgar Allan Poe)
»
16.09.2004 18:37:27 / Bjorn
Í dag, fimmtudaginn 16 september, mun ég fjalla um sjónvarps iconið
mitt, Darkwing Duck. En fyrir allra hörðustu lesendur blogg míns þá
hafi þið vafalaust komið auga á seinasta "quote-ið", þar sem vitnað
er í sjálfan manninn. Fyrir þá sem ekki vita hver Darkwing Duck er,
það er leitt, því hér er án efa besti karakter sem
Disney-samsteypan, undir stjórn hins illa Michael Eisners(hann
ætlar nú að hætta árið 2006), hefur framleitt fyrir okkur
neytendur.
Í þáttunum um Darkwing fylgdust við með því er hann barðist við
illmenni Andabæjar(fyrir þá sem vita hvað Andabær heitir á ensku
endilega látið mig vita, ég VERÐ að vita það) í circa hálftíma
þáttum. Með honum var flugöndinn þarna(man ekki hvað hét) og voru
þeir öflugt teymi. Ég fjárfesti síðan í sjálfum leiknum, þar sem ég
fór í hlutverk Darkwing og barðist við spillingu og glæpi.
Allavegna, þetta er mitt sjónvarps icon(idol), endilega segið mér
frá því hvert ykkar sjónvarpsicon er.
"The advantage of a bad memory is that one enjoys several times the
same good things for the first time." (Friedrich Nietzsche)
(Þessi bloggfærsla er til marks um það að rithöfundur hennar sé
búinn að missa vitið, mæli með því að lesendur hringi sem allra
fyrst í geðdeild og láti læsa hann inni þar sem hann getur aldrei
angrað neinn framar með furðulegum bloggfærslum)
»
13.09.2004 15:14:55 / Bjorn
Ég veit ekki hvað ég ætti að segja frá, alveg er þetta makalaust
hvað maður getur klikkað í blogginu. Kannski ég ætti að fæla
lesendur mína frá með umfjöllun um hvað RÚV séu miklir slúbbertar
með þessum endalausa innflutningi sínum á BBC sjónvarpsþáttum um
eitthverjar aðalsættir á 18 og 19 öld í Bretlandi. Hvernig getur
fyrirfinnst svona mikið efni af sama efninu aftur og aftur og
aftur. Mér finnst þetta voðamikil sóun á pening. Hvað eigum við þá
að kaupa í staðinn spyrji þið? Allavegna ekki eitthverja endurrunna
Bandaríska "sitcom" þætti eða spænskar kvikmyndir og franskar sem
meika ekkert sense.
Annars var ég nett hræddur í dag bæði í Félagsfræði og Hagfræði, ég
var hræddur í félagsfræði vegna þess að ég er alltaf hræddur við
Margréti Har og Imma var eitthvað "iffy" yfir látunum í fólki. Ef
það passar sig ekki þá gæti hún sest á það.
"The worst part of public transportation is the Public." (Darkwing
Duck)
»
06.09.2004 17:51:12 / Bjorn
Ég hef ákveðið hvert bekkurinn fer í útskriftarferðinni, við munum
fara til Lettlands og gista eina nótt í Sovésku "fangelsi". En í
Fréttablaðinu er nefnilega þessi skemmtilega grein um að núna fái
ferðamenn sem borga svimandi háa upphæð, 700 ÍSLENSKAR krónur, að
gista eina nótt í gömlu fangelsi og kynnast af eigin raun hvernig
gestrisni Sovétmanna var háttað. Þar er öskrað á mann, maður settur
í einangrun(þó aðeins ef þú ert ekki þægur) og klósettaðstaðann er
lítið gat sem mun vera á gólfinu, semsagt mjög kósí.
A conservative is a man with two perfectly good legs who, however,
has never learned to walk forward. (Franklin Delano Roosevelt)
(The opinions expressed by Mr. Roosevelt are not necessarily those
of The Lounge of Gentlemen)
»
03.09.2004 17:33:53 / Bjorn
Var rétt í þessu að klára að horfa á upptöku af ræðu George W. Bush
á landsþingi Republikana. Mjög áhrifamikil ræða, þó hún hafi verið
líkari state of union ávarpi en venjulegum landsþingsræðum. Í henni
lofar hann miklum breytingum í skólakerfi Bandaríkjanna, auka störf
í landinu, betrumbæta heilsugæslu og fleira og fleira.
Metnaðarmikil loforð, þó einkennast meir af hugsjónum en
staðreyndum. Umgjörð Landsþingsins einkenndist ekki af jafnmiklum
íburði og Landsþing Demókrata, án efa tilraun til að breyta ímynd
flokksins og jafnframt Forsetans. Forseti gerði nokkur skot á
andstæðing sinn, John Kerry, en hann gerði líka eitt skot á sjálfan
sig; Bush: You may have noticed I have a few flaws, people
sometimes have to correct my English, I knew I had a problem when
Arnold Schwarzenegger started doing it. Allavegna, ræða hans var
mjög forvitnileg og jafnframt skemmtileg þrátt fyrir að nokkrum
sinnum hafi þurft að færa óeirðaseggi út úr salnum. Hef ég strengt
loforð við sjálfan mig að a.m.k einu sinni á ævinni mun ég sitja
landsþing Republikana. Öllum er heimilt að koma með mér og taka
þátt í showinu.
»
30.08.2004 14:31:19 / Bjorn
fékk góða hugmynd að sápuóperu: Dinerinn. er þessi hugmynd
sprottinn af ferð okkar skúla, brynjars og þorkells á þann mikla
veitingastað. í sápuóperunni myndum við fylgjast með eigenda
dinersins og starfsmönnum og auðvitað viðskiptavinanna, og myndu
þau öll lenda í sniðugum ævintýrum eins og þegar
heilbrigðisinspectorinn kemur í heimsókn og dinerinn lendir í þeim
málum að þurfa loka daddadaaaaa!!!!! eða þegar vondi auðjöfurinn
ætlar sér að yfirtaka staðinn og segja upp starfsfólkinu.
ooooohhh!!!!!
»
25.08.2004 16:11:10 / Bjorn
nú er skólinn byrjaður aftur af fullum krafti og eftir aðeins 2
daga hefur mér og öðrum aðilum tekist að mæta seint í eftirfarandi
tíma; íslensku og leikfimi og vegna seinleika hætt við að mæta í
hagfræði. Glæsileg byrjun hjá manni. En á öðrum skemmtilegum nótum
þá var hinn mikli maður Bill Clinton í heimsókn á okkar littla
skeri og kom hann við í Bæjarins bestu og fékk sér pulsu(muna pulsa
ekki pylsa), á hana fékk hann sér sinnep. Annaðhvort fékk hann sér
ekkert meira eða við fáfróðu íslendingar fáum ekki meiri heimildir
um pulsuinnihaldið frá talsmönnum forsetans fyrrverandi. Nú er
málið að skella sér niðri í bæ og fá sér einn "Clinton" hjá
Bæjarins. Hver veit nema að bráðum muni Bæjarins Bestu skapa
jafnstóran sess og Bláa lónið í Íslandskynningum erlendis.
»
19.08.2004 22:19:42 / Bjorn
núna er skólinn að fara hefjast fyrir þá sem ekki vissu og hélduð
að þið gætu slugsað með að fara á skiptibókamarkað og fengið
pínulítið brot af því sem þið borguðuð fyrir bækurnar ykkar
seinasta haust tilbaka. en sá merkisdagur mun vera næsta þriðjudag.
en á laugardaginn mun vera svokölluð menningarnótt í reykjavík, sem
hefst þannig að fyrst munu eitthverjir duglegir taka sig til og
skokka niðri bæ í hinu heimsfræga Reykjavíkur maraþoni, meðal
þeirra mun vera hópur eldri borgara sem meirihluti veit ekkert hvað
það er að gera þarna og munu setningar eins og; "hvar er ég", "ég
er syfjaður" og "ég þarf á klóstið" hljóma ótt og títt í þessum
skemmtilega hópi. en nóg með skítkastið á eldra fólk, síðan mun
eitthver aðili vinna þetta maraþon, mun að öllum líkindum vera
einstaklingur frá afríku ríki sem við "lazy fat icelandic people"
könnumst ekkert við. síðan mun fjölskyldufólk drífa sig niðri bæ um
kvöldið til að 1. finna ekki stæði, 2. labba um í sveittri þvögu af
fólki sem stal öllum stæðunum, 3. bíða eftir flugeldasýningu. Síðan
þegar sú sýning er búinn mun þetta fjölskyldufólkið halda heim á
leið, þá munu svo koma children of the night fram á sjónarsviðið,
þ.e.a.s. fullir unglingar og munu þeir skemmta sér fram til morguns
(skemmta sér þýðir auðvitað ekki vita hvar það er vegna óhóflegrar
drykkju og ekki vita hvernig það kemst heim) þetta mun vera mín
úttekt á menningarnóttinni. þeir sem eru ósammála mér og langar að
berja mig endilega kommentið og látið óánægju ykkur í ljós.
»
12.08.2004 17:02:09 / Bjorn
í dag fékk ég áhugavert bréf í gegnum lúguna, en það var frá
orkuveitu Reykjavíkur. Á því stóð með stórum rauðum stöfum: VERIÐ
VIÐBÚIN! Lokað verður fyrir kalda vatnið þann 12 ágúst frá klukkan
13:00 til 17:00. Allt í lagi gott að þeir láta mann nú vita, en
málið er það kom í gegnum lúguna klukkann 13:45, heilum 45 mínútum
frá því að lokað var fyrir kalda vatnið, svo ég var ekkert viðbúinn
og ég varð því fyrir nettu sjokki þegar ég ætlaði að fá mér kalt
vatnsglas. Ætli sökin sé Orkuveitunnar eða póstsins fyrir þessu
áfalli sálarlífs míns?
»
08.08.2004 18:19:08 / Bjorn
núna ætla ég að prófa að skrifa það sem við eðalmenn bloggheimsins
köllum sorglegt blogg: Vaknaði klukkann 11 í dag, nennti ekki á
fætur. Ákvað að bíða aðeins. Fór síðan framúr og fékk mér pizzu frá
því í fyrradag, var orðinn dáldið hörð. Ég kveikti síðan á
sjónvarpinu. Það var ekkert í því. Horfði samt á það. Fór síðan á
klóstið, hélt síðan áfram að horfa á sjónvarpið. Ennþá ekkert í
því. Fór því á netið og er að skrifa þessa færslu. (Ég vil taka það
fram að texti þessi tengist mér að engu leyti, er hann uppspuni með
öllu).
»
03.08.2004 13:00:07 / Bjorn
ákvað að blogga smá, þrátt fyrir bloggbannið sem ég er í, hef
ekkert að segja, ekkert að gerast, en endilega kommentið eitthvað
skemmtilegt til að gleðja lítinn björn
»
Síður:
1 2 3 4